Þeir spáðu rétt
Spáin var rétt og það er kominn snjór, 5-7 cm, og það á víst að snjóa í allan dag. Skólarnir eru lokaðir, þannig að Lindsey er ánægð, og krakkarnir eru úti að leika sér. Þau fóru út í morgun og ég hef ekki séð þau síðan en ég held þau eru einhverstaðar í nágreninu að leika sér með öðrum krökkum. Alison á að vera að vinna í dag en hefur ekki lagt í það að keyra þangað. Það lamast allar samgöngur í þessu landi þegar það snjóar. Ég ætlaði að vera í Manchester í dag en hætti við það þegar ég sá snjóinn í morgun og er bara heima að vinna, sem er náttúrulega miklu betra.
Það er verið að leggja flísarnar á gólfið í eldhúsinu í dag og það lítur bara vel út.


Iss, fyndið að allt landið stoppar bara ef það kemur smá snjór hehe.
SvaraEyðaÉg og Einar erum bara heima í dag, ég var í smá hné aðgerð á þriðjudaginn og er að jafna mig á því. Þannig að þar sem ég er heima þá hafði ég bara Einar heima líka og erum við bara að horfa á teiknimyndir á náttfötunum, svaka stuð!
Gangi ykkur vel með lokahnykkinn á eldhúsinu.
Kveðja