laugardagur, febrúar 17, 2007

Heil vika síðan síðast!

Heil vika síðan ég skrifaði síðast! Hvað hefur gerst síðan þá??

Eldhúsið er svotil tilbúið. Það var klárað að leggja gólfið í síðustu viku og það er alveg frábærlega flott. Flísarnar líta út eins og ljósleitur marmari og inn á milli er viðarlíki sem er eins og viðurinn í skápahurðunum. Það eina sem við eigum eftir að gera er að mála veggina. Við erum ekki búin að finna litinn en það hlítur að koma að því. Það eina sem er að angra okkur er þvottavélin. Stundum þegar hún er að vinda þá hristist hún svo mikið að hurðin sem er framaná opnast og lokast með skellum. Við höfum verið að kvarta og það eru karlar búnir að koma og skoða en allt virðist vera í lagi. Hurðini er haldið aftur með segulstáli og þeir ætla að senda okkur annan segul. Kanski það virki en við erum ekkert alltof ánægð.

Snjórinn sem við fengum í lok síðustu viku var horfinn eftir tvo daga en það lömuðust allar samgöngur. Ég fór á skrifstofuna í Coventry á föstudaginn og seinnipartinn fór að snjóa aðeins meira. Ekkert mikið en hitinn fór niður í frostmark þannig að krapið á götunum fór að frjósa og það var svakalega seinlegt að komast heim. Sérstaklega á minni götunum þar sem voru brekkur. Þar voru langar biðraðir og allt gekk voðalega hægt. Svo fór allt að hlýna og það hefur verið 10 stiga hiti og fínt veður alla síðustu viku.

Krakkarnir eru búir að vera í hálfannarfríi þessa vikuna en fara aftur í skólan á mánudaginn. Þau eru búin að fara í ten pin bowling og bíó og hitta vini sína. Bara gaman hjá þeim.

Við Alison fórum út að borða á degi heilags Valentínusar sem var indælt. Við fórum á indverskan veitingastað í Henley. Daginn eftir, 15. feb, kom Ron tengdapabbi í mat til okkar en hann átti afmæli þá. Sami dagur og Boggs systir; til hamingju með daginn Bogga!

Ég hef ekki þurft að vera í Manchester en hef verið í skrifstofu okkar í Coventry. Það er ekki hægt að vinna heima þegar krakkarnir eru þar líka. Það er endalaust ónæði. Ég býst þó við að vera í Manchester mestalla næstu viku.

2 ummæli:

  1. Sæll frændi.
    Fékk slóðina hjá Ragnheiði og gaman að fylgjast með því hvernig lífið gengur fyrir sig hjá þér og þínum.
    Voða er nú orðið langt síðan við sáumst síðast. Synd að hafa ekkert séð þig þegar þú komst um jólin. En það gerist kannski næst. Nú eða ef ég skyldi eiga leið um Bretland.
    Kær kveðja,
    Helga

    SvaraEyða
  2. Til lukku með eldhúsið - ég verð að koma að sjá :)

    Guðrún

    SvaraEyða

Skildu eftir skilaboð handa mér...