Engar breytingar í eldhúsinu
Það er búið að vera rólegt í eldhúsinu í dag. Karlarnir sem byrjuðu að vinna í því í gær eru faðir og sonur. Sonurinn á litla dóttur sem er með hvítblæði og hann varð að fara með hana á spítalann í dag og faðir hans var með einhverja magakveisu. Ég sletti málningu á loftið í gærkvöldi því það er mikið auðveldara að gera það meðan allt er í drasli (maður þarf ekkert að passa sig að það slettist ekkert).
Í gær fórum við Alison út að borða í hádeginu, Hávar borðaði í skólanum og Lindsey fór í heimsókn til vinkonu sinnar og borðaði þar. Í kvöld förum við til vina í mat. Svona verður þetta að vera þegar engin er aðstaðan.


Ykkur er meira en velkomið að borða hjá okkur hvenær sem er!!! Hrikalegt að vera svona eldhúslaus :(
SvaraEyðaKnús og kremjur,
Bogga og co.