Skíðabrekka
Ég gisti á nokkuð fínu hóteli í gær sem heitir Coppid Beach og lítur út eins og Svissneskur skíðaskáli. Ég keyri framhjá þessu hóteli í hvert skyfti sem ég kem til Bracknell en hafði aldrei gist þar. Ég vissi þó ekki er að það er skíðabrekka á bakvið hótelið með skíðalyftu og öllum græjum. Það er reyndar ekki alvöru snjór í brekkunni heldur einhvernskonar gerfiefni. Einhverjir kappar voru þarna að renna sér á snjóbrettum og stökkva af pöllum en það getur ekki verið eins skemmtilegt og í alvöru snjó.
Ég er búinn að lesa einu bókina sem ég fékk í jólagjöf. Þetta var nýasta bókin eftir Bill Bryson, "The Life and Times of the Thunderbolt Kid" og ég hafði mjög gaman að lesa hana. Ég er búinn að lesa nokkrar bækur eftir hann og þær eru allar góðar. Mér fannst sérstaklega gaman að lesa "A Short History of Nearly Everything" sem er örðruvísi en allar hinar bækurnar hanns. Vísindi í einföldu og áhugaverðu formi.


Þú hefðir bara átt að láta vaða, leigja þér bretti og reyna þig með hinum köppunum!!
SvaraEyðaÉg var að skoða þessa bók sem þú varst að tala um á Amazon. Þar kostar hún um 10 pund, en hún kostar 2.766 kr. í Bóksölu Stúdenta! Ótrúlegt að Íslendingar teljist til bókaþjóðar miðað við verð á bókum hérna...
Kveðja, Bogga
Kanski hefði ég átt að leigja mér bretti en það var orðið frekar seint og ég var svangur og vildi frekar fara út að borða. (Kanski lagði ég ekki í það heldur).
SvaraEyðaBækur á Íslandi eru ótrúlega dýrar. Var búið að þýða bókina á þessu verði eða var hún á ensku?
Hún var á ensku, námkvæmlega sama útgáfa og fékkst á Amazon. Þetta er alveg magnað!
SvaraEyða