Skegghýjungur
Hávar hefur verið að suða í mér í nokkrar vikur um að fá að raka sig. Hann er með smá hýjung á efri vörinni sem er orðinn svolítið áberandi. Alison var búin að kaupa handa honum rakblöð, sápu og spíra og hann hefur verið að iða í skinninu til að nota græjurnar frá því fyrir jól. Í gærkvöldi tókum við okkur til og hann rakaði sig í fyrsta skyftið, tólf ára drengurinn.
Þetta gekk allt fínt og nú lítur hann út eins og smástrákur, með hárlausa efri vör, en stóránægður með sjálfan sig.
Á laugardaginn áttum við í smá vandræðum við að komast í partíið hjá fyrirtækinu hennar Alison vegna rafmagnsleysis en það bjargaðist allt á endanum. Við fórum með krakkana til systur hennar þar sem þau gistu yfir nóttina. Kvöldið var stórgott og við skemmtum okkur vel.
Rafmagnið var komið í samband seinna um kvöldið.


Jæja, Hávar byrjaður að raka sig! Þetta er nú bara merki um hvað tíminn flýgur ;)
SvaraEyðaÞið rétt misstuð af mestu vetrarhörkum í lengri tíma. Nú er allt á kafi í snjó og frostinu ætlar ekki að linna. Oberon borar sér í snjóinn úti á palli og býr til lítil snjóhús. Lindsey myndi sko gleðjast yfir þeirri sýn :)
Kær kveðja til allra,
Helga.