Hörður og Árný
Við fengum frekar óvænta heimsókn á helginni. Hörður bróðir hafði samband við mig um miðja síðustu viku. Hann og Árný voru á leið til London í helgarreisu og ætluðu að kíkja á okkur.
Við vorum í algeru drasli. Nýbúið að múra veggina en ekki búið að ganga frá neinu en það varð bara að hafa það.
Þau komu svo til okkar á laugardaginn en því miður var veðrið frekar leiðinlegt (blautt) þannig að það var ekkert hægt að fara með þau út að keyra eða að ganga. Og við vorum frekar upptekin við að skutla Hávari hingað og þangað en við fórum með þau inn í bæ að versla og svo fórum við út að borða um kvöldið.
Þau fóru svo aftur til London á sunnudagsmorgun.
Takk fyrir komuna!
Þetta sem Hávar var að þeysast í var fyrst ferð með vinum í The Snowdome í Tamworth og svo í partý með leikhúshópnum.
Blogged with Flock


Hæ hæ,
SvaraEyðaTakk fyrir okkur. Það var hreint frábært að kíka í heimsókn. Við skemmtum okkur konunglega þrátt fyrir veðrið.
Sjáumst vonandi fjótt aftur.
kv.
Hörður og Árný