Þjóðhátíðardagur
Mamma fór heim frá Glasgow á fimmtudaginn eftir að hafa farið til Edinborgar á þriðjudaginn og svo í skoðanaferð til Loch Lomond og nágreni á miðvikudaginn. Ég held að hún hafi skemmt sér ágætlega, allavega var gaman að sjá hana.
Í gær var sautjándi Júní og til að halda uppá þjóðhátíðardaginn fórum við í BBQ til Guðrúnar og Magnúsar ásamt Annie og Lúdó. Það var gaman og grillið var sértstaklega bragðgott. Það var hálf ótrúlegt að rigningin hélt sig einhverstaðar annarstaðar heldur en í Redditch því það er búið að vera ansi blautt þessa síðustu daga. Er það ekki óvenjulegt fyrir þjóðhátíðardag eða frídaga yfirleitt?
Lindsey tók það á sig til að læra helstu litina á Íslensku og gekk bara vel.
En í dag er sú litla heima með bakverk. Hún hefur verið að fá í bakið öðru hverju en á milli er hún í nokkuð góðu formi. Það á að heimsækja lækninn í kvöld til að athuga með hana. Þarna á myndinni er hún úti í garði (í góðu formi) að masa í síma við eina vinkonu sína.
Ég flaug aftur til Glasgow í morgun. Það var farið að rigna aftur í Birmingham en sólin skein í Skotlandi.
Gleðilegan þjóðhátíðardag í gær!!! Það kemur alltaf ánægjulega á óvart þegar 17. júní er rigningarlaus. Svo var einnig hér á klakanum, bara sól og fínheit hér eins og hjá ykkur :)
SvaraEyðaVonandi jafnar Lindsey sig fljótt í bakinu.
Kveðja,
Bogga og co.
Gleðilega þjóðhátíð í fyrradag!! :) Ánægð með Lindsey að læra litina á íslensku, endilega hvetja hana áfram.
SvaraEyðaBið að heilsa öllum ;)
Langaði bara að benda þér á þennan hlekk:
SvaraEyðahttp://mbl.is/bladidnet/2007-06/2007-06-19.pdf
Það er smá viðtal við Trausta á bls 18!!
*Knús*
Bogga
Takk fyrir hlekkinn Bogga.
SvaraEyða