Litlir sumadagar
Vonandi er þessi rigningatíð að ljúka. Það rignir ekki á hverjum degi og þurru dagarnir eru jafnvel indælir.
Krakkarnir hafa haft mikið að gera í sumarfríinu sínu. Það er svo stutt að það verður að troða eins miklu að og hægt er. Þau hafa farið í bíó, keilu, heimsóknir til vina, o.s.f.v. Í gær var veðrið nógu gott til að fara í vatnsbardaga og það var hópur af krökkum með vatnsbyssur og fötur í götunni hjá okkur. Allir haugblautir. Voða gaman.
Hávar er að undibúa sig til að fara í viku útilegu með skátunum. Það er heill hellingur af skátum samankomnir í Chelmsford í Essex til að halda uppá 100 ára afmæli skátahreyfingunar. Það komast ekki allir að þar en þeir fara samt í útilegu til að halda uppá afmælið. Svo verður farið í dagsferð til Chelmsford á fimmtudaginn. Það verður mikið að gera í þessari útilegu hjá þeim og vonandi verður veðrið gott.
Hæhæ...gaman að heyra að veðrið er að batna hjá ykkur...núna er ég inni að hvíla mig frá sólunni sem er að steikja mig í Reykjavík...21°hita :I
SvaraEyðaSöknum ykkar allra...mamma biður að heilsa Kv. Sólveig