Flautueigandi
Það er bráðum orðið eitt ár síðan Lindsey byrjaði að spila á þverflautu. Fyrst tókum við eina á leigu í fáeina mánuði því við vildum ekki eyða stórum fúlgum í eitthvað sem hún myndi missa áhugann á. Svo fengum við gamla flautu að láni frá vinkonu Alison, og Lindsey hélt áfram að læra og spilar núna lítil lög. Hún æfir ekki mikið heima en þó svona aðeins og svo fær hún smá kennslu í skólanum, einu sinni í viku.
Á helginni tókum við okkur til og keyptum handa henni splunkunýja þverflautu og hún er svo ánægð með hana. Og það verður að segjast að hún hljómar mikið betur en gamla lánflautan.
Það verður að halda henni við. Hún er sú eina í fjölskyldunni sem spilar á eitthvað hljóðfæri.
Hávar var ekki mikið heima þessa helgina. Einn af vinum hanns úr leiklistarhópnum átti afmæli og hann var þar mestalla helgina. Á meðan héldum við Alison áfram að undirbúa veggina í húsinu. Hún er búin að finna einhverja verkmenn sem geta gert það sem við viljum svo nú er bara að plana hlutina svo þeir geti gerst.


En gaman :) Endilega hvetjið hana áfram frá mér líka!!
SvaraEyðaHaha...ég var einmitt í Flautu forskóla í2 ár svo ég kæmist í alvöru flautunám :S en svo þegar það var búið og ég átti að fá að spila á þverflautu þá var bara "því miiðuuur" tónlistarskólinn fullur og ég komst barasta ekki inn :(...bummer, en ég sneri mér að öðru sem ég er mjög sátt með !!! Gangi ykkur vel með veggina :D
SvaraEyða