þriðjudagur, október 09, 2007

Asni, álfur, bjálfi...

Voðalega var ég vitlaus í gær.

Fór að heiman án þess að taka peningaveskið með mér.

Fattaði ekkert fyrr en ég var komin á hótelið, þar sem ég stóð og gramsaði í vösum og töskum en fann náttúrulega ekkert veski. Sem betur fer veit fólkið á hótelinu hver ég er, eða allavega að ég gisti hjá þeim í hverri viku, þannig að ég fæ að gista og borða.

Á meðan situr veskið á sínum vanastað heima.

2 ummæli:

  1. Neinei, ekki asni, álfur eða bjálfi. Í okkar fjölskyldu heitir þetta að vera prófessor!!
    Já prófessoraheilkennið getur verið varasamt og komið manni í klípu, maður þarf bara að læra að lifa með því :)

    Kveðja,
    Bogga

    SvaraEyða
  2. Ekki fannst mér þetta gáfulegt af mér en prófessorar eru ekki vitringar heldur sérvitringar þannig að ég gæti vel verið einn slíkur...

    SvaraEyða

Skildu eftir skilaboð handa mér...