fimmtudagur, júní 28, 2007

Sumarfrí - Loksins

Þá erum við loksins komin með plan fyrir sumarfríið okkar.

Við höfum verið í vandræðum með að finna eitthvern stað sem okkur langar til og getum varið á því það varð að vera skifti á "timeshare" íbúðinni okkar. Okkur langaði mikið til að fara til Skotlands en það var ómögulegt að finna neitt þar og það var ekkert að hafa í Frakklandi eða á Spáni heldur, nema á Kanaríeyjum en við vildum ekki þangað.

Við vorum búin að panta tveggja vikna frí í ágúst frá vinnuni en ekkert gekk að finna stað fyrir okkur og við vorum farin að hafa áhyggjur af því.

Það kom upp möguleiki fyrir nokkrum vikum að fara til Ungverjalands og okkur var farið að hlakka mikið til en þá kom í ljós að íbúðin þar var of lítil fyrir okkur fjögur. En svo á síðustu helgi fanst stærri íbúð á sama stað þannig að allt er komið í gang og við erum byrjuð að plana ferðina.

Við ætlum að fljúga til Vínarborgar og keyra þaðan til Ungverjalands. Staðurinn sem við fengum er við Balaton vatn og þar ætlum við að slappa af og skoða nágrenið. Við ætlum í helgarreisu til Budapest og við skreppum trúlega til Croatia og Serbia sem eru ekki langt frá. Eftir tvær vikur þarna förum við til baka til Vínar og verðum þar í 3 daga áður en við höldum heim á leið.

Alison fór á bókasafnið í gær og fékk nokkrar bækur um Ungverjaland sem ég er byrjaður að lesa því maður verður að vita eitthvað um landið sem maður er að heimsækja.

Loksins getum við farið að hlakka til að fara í sumarfrí.

4 ummæli:

  1. Vá Ungverjaland! Það er flott hjá ykkur. Hvað er þetta Time-share?? Eru það svona vistaskipti þar sem einhverjir verða í ykkar íbúð og þið í þeirra (...)?
    Alla vega, sumarfríið hljómar vel!
    Ást og kossar,
    Bogga

    SvaraEyða
  2. Já, Bogga. Þetta verður svona öðruvísi frí, á stað sem fólk fer ekki verjulaga á og okkur hlakkar mikið til.

    Hvað er Timeshare? Það er von þú spyrjir.
    Við eigum hlut í lítilli íbúð á Tenerife á Kanaríeyjum og höfum afnot af henni eina viku á ári. Við höfum aldrei farið þangað því við keyptum hana þegar við vorum þar á ferðalagi fyrir mörgum árum og þá var verið að byggja hana. En semsagt, við leggjum vikuna okkar inn í "banka" og svo leitum við að annarri íbúð sem hefur verið lagt í "bankann" líka. Við þurfum ekkert að hafa áhyggjur af því hver fær vikuna okkar, heldur þurfum við bara að finna okkur viku. Þetta eru staðir útum allan heim og allt voða fínir staðir.
    Við höfum yfirleitt fengið staði í Englandi (Cornwall og Wales) og þeir hafa alltaf verið góðir.

    SvaraEyða
  3. Hvað er þetta eiginlega með Breta og töluna 13??

    http://visir.is/article/20070628/LIFID01/70628090

    Kveðja,
    Bogga

    SvaraEyða
  4. Planið hljómar ekkert smá vel!! Von að þið hlakkið til :)

    Við förum ekkert til útlanda í ár en sem betur fer hefur íslenska sumarið verið einstaklega gott. Höfum sólað okkur á pallinum dögum saman og erum bæði eins og við séum nýkomin úr sólstrandaferðalagi. Ætlum norður um helgina en þar er víst blíða líka.

    Sólarstuðkveðja,
    Helga, Pétur og Oberon.

    SvaraEyða

Skildu eftir skilaboð handa mér...