Fleyri hljóðfæri
Lindsey er nokkuð góð á blokkflautunni sinni, getur spilað nokkur lítil lög og hefur gaman af. Kennarinn sem kennir henni tónlist fékk hana til að prufa alvöru flautu fyrir nokkrum vikum og Lindsey varð ofslega spennt og vildi endilega fá flautu sjálf. Við vildum ekki kaupa flautu strax því þær geta verið nokkuð dýrar, þannig að við tókum eina á leigu. Hún er búin að hafa hana í fáeinar vikur og reynir á hverjum degi en hún á dálítið erfitt með að fá úr henni almennilegt hljóð. Hún er trúlega of stór fyrir hana. Það er hægt að fá flautur sem eru bognar og því auðveldari fyrir stutta handleggi en við sjáum til.
Um daginn fór hún í heimsókn til vinkonu sinnar sem er að læra á fiðlu, og þegar ég sótti hana hélt hún "tónleika" fyrri mig. Á eftur sagði hún að hún vildi frekar læra á fiðlu því það var miklu auðveldara að ná úr henni hljóði heldur en flautunni.
Aaarrrgh...
Sæll Ingvar :) Takk fyrir að kommenta á síðuna mína hér um daginn. Að sjálfsögðu man ég eftir þér og man hvað það var oft gaman hjá mér þér og Þóri Steinars :)
SvaraEyðaVona að þú hafir það gott og nú mun ég fylgjast með hvað er að gerast hjá þér og þinni fjölsk. fyrst ég veit núna um síðuna þína :)
Hahaha, hún er sko ákveðin í að láta heyra í sér!! Fiðluískur fer nefnilega ekki fram hjá neinum.
SvaraEyða