Snemmkomið vor
Ég var að lesa dagblað yfir morgunkaffinu áðan og þar var grein um að sumir íkornar hérna í Englandi eru farnir að eiga unga núna (veðrið hefur verið frekar milt) heilum mánuði of snemma. Broddgeltirnir eru líka farnir að vakna þó ekki sé mikið fyrir þá að éta. Þeir borða aðalega snigla og þessháttar góðgæti sem sést ekki enþá þannig að sumir eru farnir að taka þá inn og gefa þeim að borða.
Þetta er svakalegt!


Sæll frændi
SvaraEyðaGæti trúað að þessi frétt á MBL vekti áhuga þinn.
http://mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1257263
Kveðja, Helga
Takk fyrir það frænka góð. :)
SvaraEyðaÉg hef aldrei hitt Þorleif Jaðrakana en samt gaman að heyra af honum.