Tunglmyrkvi
Sáuð þið tunglmyrkvan í gærkvöldi? Við fórum út með vinum í leikhús að horfa og hlusta á fólk syngja lög úr söngleikjum. Það var alveg ágætt en samt ekki eins gott og við vorum að búast við. Á leiðinni heim var myrkvinn að byrja og þegar við komum heim var hann svo til alger. Ég reyndi að taka mynd af tunglinu og hér er útkoman. Kanski ekkert voðalega skýr en samt ágæt.


Neibb, ekki sáum við myrkvann, ég vissi bara ekki af honum fyrr en talað var um hann í fréttum kvöldið eftir...
SvaraEyðaKveðjur til allra,
Bogga og co.
Við sáum hann - Flottur -
SvaraEyðaMagnús tók fullt af myndum og skemmti sér við það í klukkutíma :)
Hvað ætli fólkið fyrir 2-3000 árum hafi hugsað þegar það sá tunglið svona?
kveðja
Guðrún